mánudagur, desember 01, 2008

Ég fann allt gullið


An Eagle On Your Mind by ~moejo

Sköpunargáfan virðist vera komin aftur. Hef gert lítið annað þessa dagana en að skrifa. Er farin með ljóðabókina í aðeins aðra stefnu, en ég er virkilega spenntur yfir þessu. Þetta verður meira svona fjöl-lista thing, er að sameina ljóð, ljósmyndun og bókmenntir. Kemur allt í ljós! Ef ég held áfram á þessum hraða verður ekki langt þangað til að ég get farið að sýna þetta.
Var búin að steingleyma að blogga. Hef eiginlega ekki nennt því. En svo koma svona dagar þar sem maður þarf greinilega að seigja eitthvað við heiminn.
Ætli þetta tengist því ekki að ég á að vera læra en er að finna afsakanir til að sleppa því.


Ég vona að við sofnum í nótt
augun geta ei meir.
Hitt hef ég marga í sömu sporum
Ekki fleir, get ei meir.
Ég hef gengið í alla nótt
í þeirri veiku von
að við sofnum í nótt.

Útbúið hef ég lítinn stað
lítið athvarf, til að flýja á.
Hverfa burt frá þessum stað
og vonandi sofna.
Vakni sem nýr, glænýr ég.
Úthvíldur, loksins loksins
Tilbúin til að gera allt upp á nýtt.
Til að gera allt upp á nýtt!


N/P: MGMT - Kids

mánudagur, apríl 21, 2008

Only the strong survive


One dollar koi_new ver. side by *orudorumagi11

Kringlan, lítil veröld út af fyrir sig. Kauphyggjan í hámarki. Verslaunarmiðstöðvar eru hannaðar til þess eins að láta þig eyða pening. Engir gluggar svo þú vitir ekki hvað tímanum líður, hvað þá klukkur. Ef þú sérð ekki út þá missir þú allt tímaskin. Til að toppa þetta þá er fólk eins og ég sett í búðirnar til að heilla þig upp úr skónum og láta þig eyða fjármunum sem þú átt ekki.
Fólkið eru eins og littlir heilalausir maurar vafrandi um í leit að hlutum til að kaupa því umhverfið í kringum þá seigir bara eitt VERSLA! Sem betur fer er ég hinu meigin við borðið!

Ekki það að ég sé eitthvað að kvarta ég er svo að fýla vinnuna í botn. Mér finnst gaman í vinnuni.
En ég er kannski ekki mikið að vinna eins og þessi færsla gefur til kynna. Ég sit og er að skrifa þetta og pæla í fólkinu í kringum mig.

Skildi fólkið í kringlunni gera sér grein fyrir því að það sé verið að stjórna því. Óbeint ef þið skiljið mig. Er frjáls vilji hugtak sem við bjuggum til svo við myndum ekki fríka út yfir því að við stjórnum engu. Eða allavegana ekki í þessu nútíma samfélagi sem við búum í.

N/P: Umhverfishljóð úr kringlunni

miðvikudagur, apríl 16, 2008

Lush kind of mood


Jæja þá er maður að skipta um starfsvettang, er farin úr djúpsteikningarfeiti í náttúrlegar snyrtivörur. Gæti ekki verið ánægðari.
My life must be good, because in my nightmeres im always somebody else

sunnudagur, mars 23, 2008

Allt heillar


Nú þegar ég þarf ekki að vera hugsa um plötuútgáfu og vera stanslaust að skipuleggja hitt og þetta, virðist heilinn á mér vera að springa af sköpunargleði. Allt virðist heilla augað og allt virðist mögulegt. En hvar skal byrja? Að fá flugu í hausinn er lítið mál, en að breyta flugunni í fiðrildi er allt annað mál! En það skiptir svo sem ekki svo miklu máli. Því tilfinningin sjálf er alveg nóg, ég er farin út að láta heiminn heilla augu mín

þriðjudagur, mars 18, 2008

We made god - As we sleep

Jæja loksins er þetta meistarastykki þótt ég seigi sjálfur frá, að koma út. 27.Mars mun frumburðurinn loksins lýta dagsins ljós. Hann mun fást í öllu helstu hljómplötuverslaunum og líka í gegnum okkur á spottprís. Skartar þessu líka flott coveri sem er hannað af mér ;)
Þann 27.mars getum við finally fall asleep :)
Hef lítið annað að seigja nema þetta

Peace out
N/P: Tony the Pony - Sýnþín

föstudagur, nóvember 16, 2007

Yes, I know im a show off


An hour later, Gaukurinn fills out ignificantly for Hafnafjörður's WE MADE GOD (KKKK),
Whose commanding blend of Sigur Rós ambience, Deftones' wighty dynamics and a propulsive rhythm section make this fledgling band a thrilling prospect to watch.
Playing songs from their forthcoming album, As We Sleep, the band's frontman Mggi - a handsome hybrid of Biffy Clyro's Simon Neil and Foo Fighters' Dave Grohl - yelps, screams and pushes his voice to the heights of the Aurora Bornealis twinkling in the nighty sky.

miðvikudagur, október 24, 2007

There is no business like show buisness


Fame by Fealasy


Jólin eru búin. Iceland airwaves hátíðin 2007 er búin. Vá hvað það var gaman!! En hjá mér fylgir öllu gamni, alvara. Ég komst að því (O.k ég vissi þetta fyrir en ég komst betur að því) að tónlistarbransinn er eitt ógeðslegasta fyrirbæri sem til er í heiminum. Airwaves hátíðin samanstendur sem sagt að tónlistarmönnum sem eru að leggja líf og sál sína í lög sem hafa verið í vinnslu í kannski mörg ár. Og fyrir hvað? Í von um það að einhver big-shot blaðamaður heyri í þeim. Elski þá og geri þá fræga. O.k það gerist en mjög sjaldan. Það sem mér fannst svo ógeðslegt við þetta er að þeir (Blaðamennirnir) eru bara á fylleríi hérna og basicly don't give a shit. Eins og sást mjög greinilega í síðasta tölublaði á airwaves grapevine.
Þar var þessi svokallaða pressa að tala um hátíðina. Það eina sem þeir gátu sagt var frábært fyllerí. Og name-dropa svo þessi erlendu bönd sem komu hingað. og það voru bara tveir af einhverjum 8 sem gerði það. Ekki látast platast ég er ekkert bitur eins og þetta blogg gæti kannski gefið til kynna. Ég er bara pínulítið sár. ég lét plata sjálfan mig í það að ef ég vingaðist við þetta fólk að þá myndi það elska bandið mitt. En við vorum heppnir, við þekktum alla blaðamennina fyrir. Þannig við þurftum ekkert að bíða eftir þeim. Við fórum til þeirra. Og jú jú þetta var frábært að djamma með the "cool" crowd. En mér fannst það samt á svo röngum forsendum.

Ástæðan fyrir því að ég skuli vera í svo þungum þönkum útaf þessu er að ég sit núna og er að svara e-mailum, senda e-mail og gera hluti til að reyna contacta þetta lið. En þar sem það er að græða peninga á tónlistarmönnum. Afhverju er það ekki að leita af mér?


Maður uppsker víst því sem maður sáir. Spurningin er bara hvenær.